Uppsetning á fósturvísi

Fósturvísir þarf að uppfylla skilyrði til þess að vera valinn til uppsetningar á degi 5 eftir eggheimtu. Til að auðvelda uppsetninguna er mælt með því að þvagblaðra sé full. Aðgerðin er skammvinn og ætti ekki að vera óþægileg eða sársaukafull. Margar konur hafa áhyggjur af því að missa fósturvísinn en hann er vel varinn í leginu. Það er svo undir fósturvísinum sjálfum komið hvort hann skiptir sér frekar og festist í leginu.

Frystur fósturvísir er settur upp á sama máta og lýst er hér að ofan eftir að hafa verið afþíddur að morgni uppsetningadags. Langflestir fósturvísar lifa af afþíðinguna og eru samþykktir til uppsetningar.

 

Bókaðu tíma hjá einum af sérfræðilæknum okkar í gegnum Noona, með tölvupósti á reykjavik@livio.is eða í síma 430-4000.

 

Sérfræðilæknar Livio

Snorri Einarsson er sérfræðingur í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum og hefur starfað við ófrjósemislækningar frá árinu 2006. Hann hlaut viðurkenningu í ófrjósemislækningum sem undirsérgrein árið 2012, lauk doktorsprófi 2021 og er jafnframt kennari við læknadeild Háskóla Íslands.

Tinna Baldvinsdóttir er sérfræðingur í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum. Hún lauk sérnámi við Sahlgrenska háskólasjúkrahúsið í Gautaborg og varð sérfræðingur árið 2016. Eftir það hefur hún sérhæft sig í sónarskoðun og fósturgreiningu samhliða störfum sínum við fæðinga- og kvensjúkdómalækningar.

Þorbjörn Have Jónsson er sérfræðingur í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum með greiningu og meðferð frjósemisvandamála sem sitt aðalstarfssvið.